Allar gerðir
af raflögnum
Við hjá Fagraf tökum að okkur allar gerðir af raflögnum og höfum um áraraðir þjónustað fyrirtæki stór og smá í alls kyns rekstri. Við gerum tilboð í allar tegundir verka eða vinnum þau í tímavinnu — allt eftir þínum óskum.
Nýlagnir
Fagraf ehf. hefur tekið að sér margar tegundir nýlagnaverkefna. Nýlagnir í nýbyggingar hafa verið stór hluti af starfsemi okkar en þar reynum við að vinna þær í sem mestu samráði við eigendur og notendur til að sníða raflögnina algjörlega að þörfum viðkomandi. Við gerum tilboð í allar tegundir verka eða vinnum þau í tímavinnu, allt eftir þínum óskum.
- Sumarbústaðir
- Einbýlishús og raðhús
- Skrifstofuhúsnæði
- Iðnaðarhúsnæði
- Bátar
Almennar raflagnir
Frá töflu til tengils og allt þar á milli — allar raflagnir sem þarf til að gera þína hugmynd að veruleika.
Tölvulagnir
Við sjáum um allar lagnir og tengingar vegna tölvukerfa, hvort sem þau eru stór eða lítil. Við höfum mikla reynslu í tölvulögnum og höfum sótt námskeið og skóla á vegum tölvulagnaframleiðenda hérlendis sem og erlendis.
Ljósleiðaralagnir
Lagning innanhússljósleiðara er eitt af okkar aðalmálum í dag, hvort sem þú ert að tengja saman tölvuskápa eða leggja ljósleiðara alla leið að tölvu. Hjá okkur ert þú í öruggum höndum því við höfum þekkinguna og reynsluna í þessum málum.
Brunakerfi, mynda-, aðgangs- og öryggiskerfi
Hjá okkur eru sérfræðingar sem hafa aflað sér þeirrar þekkingar sem til þarf við uppsetningu brunakerfa sem og mynda-, aðgangs- og öryggiskerfa.
Viðhald
Rafmagnstöflur: við tökum að okkur hvers kyns viðhald á rafmagnstöflum, gömlum sem nýjum. Við ráðleggjum fólki þó eindregið að skipta út gömlum rafmagnstöflum með skrúfuðum öryggjum því þær eru orðnar úreltar og af þeim gæti stafað hætta. Raflagnir: við gerum allt í sambandi við viðhald á hvers kyns raflögnum í íbúðarhúsum, iðnaðarhúsum eða hvar sem raflagnir eru. Við yfirförum það gamla og gerum þær ráðstafanir sem þurfa til að lagnirnar séu löglegar og engin hætta stafi af þeim.
Breytingar
Við gerum hvers kyns breytingar sem til þarf: fjölgum tenglum, ljósum eða hverju sem er, í heimahúsum jafnt sem fyrirtækjum. Hvort sem breytingarnar eru stórar eða litlar erum við ykkar menn. Við gerum líka allar þær breytingar sem til þarf til að fá tölvukerfið til að vinna eins og þið viljið — og tökum eldri tölvukerfi og gerum þau betri og hraðvirkari.

